BookIceland verkefnið
BookIceland er upplýsandi ferðabókunarvél á fjórum tungumálum, fyrir ferðaþjónustuaðila á Íslandi. Markmið okkar er að bjóða fjölbreytta þjónustu fyrir fólk á ferðalagi um Ísland. Hugmyndavinnan hófst haustið 2009 og vinna við þróun og forritun fór í gang vorið 2010. Leitað hefur verið ráðgjafar fjölda aðila við þróun verkefnisins. Sérstök áhersla verður lögð á markaðssetningu í Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi og Svíþjóð og munu þýðendur BookIceland bæði þýða kynningarefni okkar og einnig sníða það að þörfum viðkomandi markaða.
Hvað er Upplýsandi ferðabókunarvél? Upplýsandi ferðabókunarvél er vefsíða sem inniheldur mikið magn af efni og upplýsingum um áhugaverða staði og býður lesendum sínum að kaupa gistingu, þjónustu eða ferðir til viðkomandi staða. Kaupendur koma að stórum hluta koma inn á vefinn í gegnum leitarvélar og því er mikið lagt upp úr efni síðunnar. Unnið er með tækni frá leitarvélunum Google, Yahoo, Bing og fleirum smærri til að markaðssetja bókunarvélina og upplýsingasíðuna. Einnig er stuðst við vefauglýsingar við markaðssetningu.
Áherslusvæði markaðssetningar
Við val á áherslusvæðum okkar var horft til talna Ferðamálastofu um komur erlendra ferðamanna hingað til lands. Frá Bretlandi og Þýskalandi koma nú þegar flestir þeirra ferðamanna sem sækja Ísland heim árlega og Bandaríkin fylgja á eftir í fjórða sæti yfir flestar komur ferðamanna.
Svíþjóð er hins vegar með lægst hlutfall stóru Norðurlandanna, en þaðan koma nú aðeins um 7% þeirra ferðamanna sem sækja Ísland heim á ári hverju. Árið 2008 voru ferðamenn frá Noregi 3000 fleiri en ferðamenn frá Svíþjóð, en til hliðsjónar er fólksfjöldi í Svíþjóð 9,3 milljónir en 4,9 milljónir í Noregi. Við teljum því mikil sóknarfæri í kynningu á Íslandi í Svíþjóð og vegna menningar Svíþjóðar teljum við að landsbyggðartengd ferðaþjónusta eins og sú sem BookIceland vinnur að eigi góða möguleika.
Skipting markaðssvæða okkar er því þannig að valin eru 3 svæði sem eru sterk fyrir og eitt þar sem við teljum ný sóknarfæri fyrir íslenska ferðaþjónustu.
Settar hafa verið upp síðurnar bookiceland.is á Íslandi, bookiceland.co.uk í Bretlandi, bookiceland.us í Bandaríkjunum, bookiceland.de í Þýskalandi og bookiceland.se í Svíþjóð. Sala í gegnum vefina hófst til tilrauna í byrjun febrúar en byrjað verður að markaðssetja síðuna í mars 2011.
Engin gjöld eru tekin fyrir skráningu á vefi BookIceland eða notkun á þeim. Tekin er 10% söluþóknun af seldri þjónustu í gegnum vefina og einnig bjóðum við ferðaþjónustuaðilum sem nota kerfið að setja bókunarvélina á sínar eigin síður og þá er aðeins tekin 5% söluþóknun.
Ferðaþjónustuaðilar sem kjósa að selja í gegnum BookIceland bókunarvélina fá ókeypis aðgang að bókunarkerfi sem heitir Móttökustjórinn og hefur verið þróað í tengslum við BookIceland verkefnið.
Skoða vefi BookIceland:
Leita að gistingu
Vinsælustu áfangastaðirnir
Ferðast um Ísland meðLundanum Tindi
Hotel of the Month
Hot Springs Hotel is a wellness hotel in the South of Iceland. The hotel is located near one of the most spectacular geothermal areas in Iceland. The hotel offers 122 rooms in a wide range of room categories during the summer and luxurious apartments for couples and families all year round.
more on Hot Spring Hotel